08.01.13 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Katrín Ómarsdóttir í Liverpool (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katrín Ómarsdóttir hefur gengið til liðs við kvennalið Liverpool á Englandi en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Katrín lék með Íslendinga liði Kristianstads DFF í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hún er nú á leið til Engands.
,,Ég vona að hæfileikar mínir og hugarfar muni hjálpa liðinu í rétta átt. Ég hlakka til verkefnisins sem er framundan og ég hlakka til að ganga til liðs við kvennalið Liverpool,\" sagði Katrín á vef Liverpool.
Liverpool endaði í neðsta sæti í úrvalsdeild kvenna á síðasta tímabili en nýtt tímabil hefst í mars og stendur yfir þar til í október.
Katrín, sem er 25 ára gömul, hefur skorað átta mörk í 48 landsleikjum en hún verður í eldlínunni með landsliðinu á EM næsta sumar.

Heimild: Heimasíða Liverpool