08.01.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rami Gershon á leið til Celtic (Staðfest)

Gershon í baráttu við Mario Gomez, sóknarmann þýska landsliðsins.

Mynd: Getty Images

Gershon í baráttu við Mario Gomez, sóknarmann þýska landsliðsins.

Mynd: Getty Images
Ísraelski varnarmaðurinn Rami Gershon er á leið á sex mánaða lánssamning hjá Celtic samkvæmt umboðsmanni sínum.
Gershon, sem leikur með Standard Liege í Belgíu, flaug til Glasgow á föstudaginn og segir Dudu Dahan, umboðsmaður hans, að allir aðilar hafi komist að samkomulagi en nú eigi bara eftir að ganga frá einföldum atvinnuleyfismálum.

Dahan deildi mynd á fésbókarsíðu sinni þar sem Gershon sést skrifa undir samning á Celtic Park og sagði að sex mánaða lánssamningur væri staðfestur, en í samningnum er klásúla sem segir að Celtic má kaupa leikmanninn og gera við hann þriggja ára samning fyrir fyrirfram ákveðna peningaupphæð.
Gershon er hugsaður sem afleysingarmaður fyrir Efe Ambrose, sem fer með Nígeríu í Afríkukeppnina.
Gershon er hugsaður sem afleysingarmaður fyrir Efe Ambrose, sem fer með Nígeríu í Afríkukeppnina.
Heimild: Sky Sports