Fotbolti.net
08.01.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Stefán, Davíð og Brynjar í HK (Staðfest)

Stefán Jóhann Eggertsson.

Stefán Jóhann Eggertsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Stefán Jóhann Eggertsson, Davíð Magnússon og Brynjar Víðisson munu allir leika á nýjan leik með HK í annarri deildinni í sumar. Þá hefur Leifur Andri Leifsson skrifað undir nýjan samning við HK.
Stefán Jóhann kemur aftur til HK eftir að hafa leikið með Leikni í fyrstu deildinni í fyrra. Brynjar og Davíð eru aftur á móti báðir að hefja leik með HK á nýjan leik eftir að hafa leikið með varaliði félagsins Ými síðastliðið sumar.

,,Ég er gríðarlega ánægður með að endurheimta þessa þrjá sterku og uppöldu HK-inga, og að Leifur skyldi framlengja við félagið,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari HK á vef félagsins.

,,Það er mikil vigt í öllum þessum strákum, þeir styrkja liðið mikið, og við fáum dýrmæta reynslu inní hópinn sem mun koma okkur vel í sumar.\"

Þeir Stefán, Davíð og Brynjar léku allir saman með HK, frá yngstu flokkum og uppí meistaraflokk, og tóku allir þátt í að fara með félaginu uppí úrvalsdeildina í fyrsta skipti, og spiluðu allir þar. Samtals hafa þeir þrír leikið 445 meistaraflokksleiki með félaginu.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.