08.01.17 - 12:50
Elvar Geir Magnússon
Chelsea búið að kalla Ake til baka (Staðfest)

Ake er mættur á Brúnna á ný.

Mynd: Getty Images

Ake er mættur á Brúnna á ný.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur kallað varnarmanninn Nathan Ake til baka úr láni hjá Bournemouth. Ake. sem er 21 árs, gekk í raðir Bournemouth á lánssamningi í júní og var stefnan sett á að hann yrði allt tímabilið hjá félaginu.
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, segir það mikið áfall að missa Ake.
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, segir það mikið áfall að missa Ake.
„Hann hefur staðið sig svo vel. Það er hægara sagt en gert að fara og sækja leikmann til að fylla skarð hans,\" segir Howe.
Ake spilaði ekki með Bournemouth þegar liðið tapaði óvænt fyrir Millwall í FA-bikarnum í gær og er því löglegur með Chelsea í keppninni.
Chelsea trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og er með næst bestu varnartölfræði deildarinnar, fengið 15 mörk á sig sem er einu meira en Tottenham.