08.01.19 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Alexander Sörloth lánaður til Gent (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Belgíska félagið Gent er búið að tryggja sér norska sóknarmanninn Alexander Sörloth á láni út tímabilið.
Sörloth var keyptur til Crystal Palace fyrir ári síðan en tókst ekki að vinna sér leið inn í byrjunarliðið og hefur aðeins spilað 20 leiki fyrir félagið.
Það þykir ljóst að Palace er búið að tryggja sér sóknarmann til að fylla í skarð Sörloth sem hefur komið við sögu í tólf úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu, en félagið ætlaði ekki að lána hann út fyrr en annar sóknarmaður kæmi inn í staðinn.
Dominic Solanke átti að taka stöðu Sorloth í hópnum en hann valdi að fara til Bournemouth.
Sörloth er 23 ára gamall og hefur gert 2 mörk fyrir Noreg í 17 landsleikjum.