Fotbolti.net
08.01.19 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Gísli Eyland til ÍA (Staðfest)

Jón Gísli Eyland til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

ÍA gekk í dag frá samningi við Jón Gísla Eyland Gíslason sem á 37 meistaraflokksleiki að baki fyrir Tindastól þrátt fyrir að vera fæddur 2002.
Jón Gísli á 13 leiki að baki fyrir U17 landslið Íslands og segist Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, vera himinlifandi með að tryggja sér þennan efnilega leikmann.

Jón Gísli var mikilvægur hlekkur í liði Tindastóls í 2. deildinni á síðasta tímabili og fékk atkvæði í vali á liði ársins. Tindastóll rétt bjargaði sér frá falli á lokakafla tímabilsins.

„Þetta er gott dæmi um afreksstefnu félagsins og sýnir fram á mikilvægi samstarfsins við Fjölbrautaskóla Vesturlands um að gefa ungum og efnilegum leikmönnum kost á að stunda íþróttir og sækja nám á sama tíma," segir á vefsíðu ÍA.

Heimild: KFÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.