Fotbolti.net
08.01.19 - 13:03
Ívan Guðjón Baldursson

Pepe búinn að skrifa undir hjá Porto (Staðfest)

Pepe í leik með Porto fyrir fjórtán árum.

Pepe í leik með Porto fyrir fjórtán árum.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski miðvörðurinn Pepe er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Porto í heimalandinu.
Pepe verður 36 ára í febrúar og mun því spila fyrir Porto til 38 ára aldurs ef hann klárar samninginn.

Pepe var hjá Porto í þrjú ár áður en hann var fenginn til Real Madrid, þar sem hann var einn besti miðvörður heims í heilan áratug.

Hann yfirgaf Real Madrid sumarið 2017 til að fara í tyrkneska boltann og varð hann mikilvægur partur af sterku liði Besiktas.

Pepe hefur verið lykilmaður í portúgalska landsliðinu síðan 2008 og lék hann ellefu leiki fyrir Evrópumeistarana í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.