Fotbolti.net
08.01.19 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Stefano Okaka til Udinese (Staðfest)

Stefano Okaka til Udinese (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski sóknarmaðurinn Stefano Okaka er genginn til liðs við Udinese á Ítalíu á lánssamning út tímabilið.
Lánssamningnum fylgir kaupmöguleiki en Okaka kemur á láni frá Watford, sem er í eigu Pozzo fjölskyldunnar rétt eins og Udinese.

Okaka hefur fengið sáralítinn spilatíma með Watford á tímabilinu en hann hefur gert 5 mörk í 34 deildarleikjum frá komu sinni til félagsins fyrir tveimur og hálfu ári.

Okaka, sem er 29 ára gamall, var fastamaður í byrjunarliði Sampdoria tímabilið 2014-15 áður en hann hélt til Anderlecht í Belgíu þar sem hann gerði mjög góða hluti og var keyptur til Watford.

„Stefano er góður og sterkur framherji. Hann er öflugur í loftinu og góður að halda boltanum. Við erum hæstánægðir með að bæta honum við hópinn okkar," sagði Daniele Pradé, stjórnandi hjá Udinese.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.