08.01.19 - 10:02
Hafliði Breiðfjörð
Stoke City rak allt þjálfarateymið (Staðfest)

Gary Rowett hefur verið rekinn frá Stoke City.

Mynd: Getty Images

Stoke City tilkynnti rétt í þessu að félagið hafi rekið Gary Rowett knattspyrnustjóra liðsins.
Liðið er í 14. sæti ensku Championship deildarinnar eftir aðeins 8 sigra í fyrstu 26 leikjum mótsins.

Í tilkynningunni kemur fram að allt þjálfarateymið hafi í leiðinni verið látið taka pokann sinn.
„Félagið vill þakka Gary og starfsfólki hans fyrir framlag þeirra undanfarna átta mánuði," sagði í tilkynningu á vef félagsins rétt í þessu.
Félagið ætlar að ráða nýjan þjálfara fljótleg en á meðan unnið er í því munu Rory Delap, Kevin Russell og Andy Quy stýra liðinu.

Heimild: Vefur Stoke