Fotbolti.net
08.01.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sturla og Edvard Dagur í KH (Staðfest)

Haukur er afar snöggur kantmaður.

Haukur er afar snöggur kantmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KH var að bæta við sig tveimur leikmönnum í dag eftir að hafa samið við Hauk Ásberg Hilmarsson rétt fyrir jól.
Edvard Dagur Edvardsson var að skrifa undir hjá félaginu ásamt Sturlu Ármannssyni.

Edvard er fæddur 1998 og lék 10 leiki með KH í fyrra. Sturla er fæddur 1999 og hefur ekki spilað keppnisleik með meistaraflokki.

Það verður áhugavert að fylgjast með framgangi piltanna en Haukur Ásberg er án vafa stóri bitinn, en hann er fæddur 1995 og á 15 Pepsi-deildarleiki að baki. Hann hefur leikið stórt hlutverk með Haukum í Inkasso deildinni síðustu þrjú tímabil en hann missti af hálfu sumrinu í fyrra til að fara í skóla erlendis.

Haukur skrifaði undir fimm ára samning við KH og ríkir gífurlega mikil ánægja innan herbúða félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.