Fotbolti.net
08.01.19 - 13:52
Ívan Guðjón Baldursson

Todibo gengur til liðs við Barcelona næsta sumar (Staðfest)

Todibo gengur til liðs við Barcelona næsta sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Goal

Barcelona er búið að staðfesta yfirvofandi komu Jean-Clair Todibo til félagsins frá Toulouse.
Todibo er 19 ára og hefur verið að vekja mikla athygli á sér sem miðvörður þó hann sé miðjumaður að upplagi.

Manchester City og Barcelona voru í kapphlaupi um leikmanninn og eru Englandsmeistararnir sagðir hafa boðið Toulouse fjórar milljónir til að fá Todibo í janúar.

Samningur Todibo við franska félagið rennur út í júní og ólíklegt er að hann fái að spila aftur á tímabilinu eftir rifrildi við stjórnendur félagsins sem vildu græða eitthvað á ungstirninu.

Todibo gengur í raðir Barcelona 1. júlí en ekki er búið að gefa út hversu langan samning hann mun skrifa undir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.