08.02.17 - 09:54
Magnús Már Einarsson
Arnar Sveinn í Val (Staðfest)

Arnar Sveinn er kominn í Val á nýjan leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Sveinn Geirsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Val á nýjan leik. Arnar Sveinn hefur skrifað undir eins árs samning við félagið.
Hinn 26 ára gamli Arnar Sveinn spilaði með Fram í Inkasso-deildinni í fyrra og Víkingi Ólafsvík sumarið 2015. Arnar er fjölhæfur leikmaður en hann lék síðast með Val árið 2014.

„Síðustu 2 ár var ég að læra úti í Bandaríkjunum í Costal Carolina skólanum og þar náðum við um tíma að vera topp 5 á landinu öllu. Á þessum tíma var mikið unnið með líkamlegan styrk og úthald og mér finnst ég allavega hafa lært talsvert þarna úti og komið heim sem betri fótbolta- og íþróttamaður heilt yfir,\" sagði Arnar Sveinn við heimasíðu Vals.
„Vegna námsins ytra hef ekki náð að taka fótboltann föstum tökum hér heima. Ég kom heim í stuttan tíma yfir sumarið og það einhvern veginn dró aðeins kraftinn úr manni. Þegar ég kom heim síðasta vor og náði heilu tímabili fann ég að ég átti talsvert inni og fékk aftur þessa góðu tilfinningu þar sem maður naut þess í botn að spila.\"
„Ég er auðvitað Valsari í húð og hár og finnst ég eiga eftir að gera ýmislegt með klúbbnum. Það er ekki eins og ég sé mjög gamall svo að mér fannst vera kominn tími til að taka fótboltann föstum tökum og ná fram öllu því sem ég tel mig eiga inni - og mér fannst það hvergi passa betur en á Hlíðarenda. Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn, enn og aftur!\"