Fotbolti.net
08.02.17 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Glenn í bandarísku B-deildina (Staðfest)

Glenn er kominn til Bandaríkjanna.

Glenn er kominn til Bandaríkjanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Jonathan Glenn hefur fundið sér nýtt félag en Armada FC í Bandaríkjunum tilkynnti að það hefði samið við kappann.

Armada er í Flórída og er haft eftir þjálfara liðsins, Mark Lowry, að hann sé í skýjunum með liðsstyrkinn en auk Glenn krækti félagið í varnarmanninn Aaron Pitchkolan.
„Allir sem komu að þessu eiga hrós skilið. Það er frábært að fá leikmenn með þessi gæði og þeir smellpassa í okkar leikstíl. Við getum ekki beðið eftir því að komast út á æfingavöllinn með þeim,\" sagði himinlifandi Lowry.

Glenn er 29 ára og hefur spilað með Breiðabliki síðustu tvö ár og þar á undan ÍBV.

Sumarið 2015 hlaut hann silfurskóinn í Pepsi-deildinni en fann sig ekki í fyrra og skoraði einungis eitt mark áður en hann missti sæti sitt í byrjunarliði Blika á endanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.