08.02.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Grindavík fær portúgalska landsliðskonu (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur samið við landsliðskonu frá Portúgal en þetta kemur fram á Facebook síðu félagsins.
Carolina Ana Trindade Coruche Mendes heitir leikmaðurinn er hún er miðjumaður og framherji.
Carolina er fædd árið 1987 en hún er mætt til landsins.
Á ferlinum hefur Carolina leikið bæði sem miðjumaður og framherji en hún hefur meðal annars spilað í Svíþjóð og í Rússlandi.

„Við hlökkum til að sjá hana á vellinum og bjóðum hana velkomna til Grindavíkur,\" segir á Facebook síðu Grindavíkur.
Grindvíkingar eru að undirbúa sig fyrir keppni í Pepsi-deildinni en liðið komst upp úr 1. deildinni í fyrra.