Fotbolti.net
08.02.17 - 20:16
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Viktor Adebahr til ÍBV (Staðfest)

Viktor Adebahr er genginn til liðs við ÍBV

Viktor Adebahr er genginn til liðs við ÍBV

Canon

Mynd: ÍBV

ÍBV hefur samið við sænska miðjumanninn Viktor Adebahr en samningurinn er til tveggja ára.
Viktor kemur úr akademíu sænska félagins Elfsborg og hefur leikið með U19 ára landsliði Svíþjóðar.

Frá Elfsborg lá leið Viktors til Ljungskile SK þar sem hann lék í Superettan í Svíþjóð sem er önnur deild Svíþjóðar.

Viktor hefur einnig leikið með Ullensaker/Kisa, HamKam, Strømmen IF og Kvik Halden í Tippeliagen og OBOS-Ligaen í Noregi.

Viktor hefur verið á reynslu hjá ÍBV og spilaði hann í sigri liðsins gegn ÍA í leik um 3. sætið í Fótbolta.net mótinu

„Með komu Viktors styrkist miðsvæði liðsins enn frekar. Viktor sýndi það í æfingaleik liðsins gegn ÍA um helgina að hann hafði góð áhrif á leik liðsins. ÍBV fagnar komu þessa öfluga miðju og kantmanns í sínar raðir,\" segir ÍBV um nýjasta leikmann liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.