Fotbolti.net
08.02.18 - 11:35
Magnús Már Einarsson

Elísabet nýr aðstoðarþjálfari U23 ára liðs Svía (Staðfest)

Heldur áfram með Kristianstad

Elísabet var valin þjálfari ársins í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Elísabet var valin þjálfari ársins í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fotball Gala

Kvennaboltinn
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari hjá U23 ára landsliði kvenna í Svíþjóð.

Elísabet hefur í tíu ár verið þjálfari Kristianstad og hún mun áfram þjálfa liðið í sænsku úrvalsdeildinni. Samhliða því verður hún aðstoðarþjálfari U23 ára liðs Svía en nýráðinn þjálfari þess er Ulf Kristiansson.
„Kristianstad verður númer eitt hjá mér,\" sagði Elísabet í viðtali við Kristianstadbladet.

„Þegar ég verð í burtu þá sér Bjössi (Björn Sigurbjörnsson, aðstoðarþjálfari) um æfingarnar eins og hann hefur alltaf gert þegar ég er fjarverandi. Það er ekki óvenjulegt.\"

Fyrsta verkefni Elísabetar með U23 ára lið Svía verður í apríl en þá fer liðið í æfingabúðir til La Manga á Spáni.

Ísland hefur ekki verið með U23 ára lið í fjölda ára þrátt fyrir að Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hafi ítrekað kallað eftir því að liðinu sé komið á laggirnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.