Fotbolti.net
08.02.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Víðir fær fjóra frá Keflavik (Staðfest)

Fannar Orri hér fyrir miðju ásamt bróður sínum, Jónasi Guðna.

Fannar Orri hér fyrir miðju ásamt bróður sínum, Jónasi Guðna.

Canon

Mynd: Keflavík

Víðir hefur styrkt sig fyrir átökin í 2. deild karla með fjórum leikmönnum úr nágrannaliði sínu, Keflavík.

Leikmennirnir eru Ari Steinn Guðmundsson, Fannar Orri Sævarsson, Erik Oliversson og Brynjar Bergmann Björnsson.

Fannar Orri er fæddur 1997 en hann er sá eini sem lék leiki í Inkasso-deildinni með Keflavík síðasta sumar. Hann kom við sögu í fjórum leikjum er Keflavík komst upp í Pepsi-deildina.

Bróðir Fannars er Jónas Guðni Sævarsson, fyrrum leikmaður Keflavíkur og fleiri liða, og núverandi framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Ari Steinn er fæddur 1996 en hann lék með Víði í 2. deildinni síðasta sumar, spilaði 11 leiki og skoraði þrjú mörk. Hann hefur einnig verið á mála hjá Njarðvík á ferli sínum.

Erik og Brynjar eru báðir fæddir 1998 og hafa litla reynslu úr meistaraflokki.

Fannar og Ari Steinn fara á láni en Brynjar og Erik hafa samið við Víði samkvæmt heimasíðu KSÍ.

Víðir hafnaði í þriðja sæti 2. deildar síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.