Al Ahly Cairo 0 - 2 Bayern
0-1 Robert Lewandowski ('17 )
0-2 Robert Lewandowski ('89 )
0-1 Robert Lewandowski ('17 )
0-2 Robert Lewandowski ('89 )
Bayern München er komið í úrslitaleik HM félagsliða eftir 2-0 sigur á Al Ahly.
Robert Lewandowski kom Bayern yfir á 17. mínútu leiksins eftir sendingu frá Serge Gnabry. Bayern hafði verið með mikla yfirburði í leiknum fram að markinu og kom því fáum á óvart þegar liðið skoraði.
Bayern bætti við öðru marki undir lok leiks og var Lewandowski aftur á ferðinni. Leroy Sane átti góða fyrirgjöf beint á kollinn á Lewandowski sem afgreiddi færið vel.
Lokatölur 2-0 fyrir Bayern sem er komið í úrslitaleikinn en liðið mætir mexíkóska liðinu Tigres í úrslitum á fimmtudag.
Athugasemdir