Fotbolti.net
08.03.19 - 18:30
Arnar Daði Arnarsson

Brynjar Óli til Færeyja (Staðfest)

Brynjar Óli (t.h.) lék með ÍR í Inkasso-deildinni.

Brynjar Óli (t.h.) lék með ÍR í Inkasso-deildinni.

Canon

Mynd: ÍR

Brynjar Óli Bjarnason leikmaður Breiðabliks hefur gengið til liðs við Sandoyar Ítróttarfelag B71 í B-deildinni í Færeyjum.

Brynjar Óli er uppalinn í Breiðablik en lék með ÍR í Inkasso-deildinni síðasta sumar. Þar lék hann 15 leiki í deild og bikar.
Sumarið 2017 kom hann við sögu í einum leik hjá Breiðablik í Pepsi-deildinni þegar hann kom inná sem varamaður í 2-1 tapi gegn Val.

Þjálfari B71 er Íslendingurinn Heiðar Birnir Þorleifsson. Heiðar tók við liði B71 í desember síðastliðnum en liðið rétt slapp við fall úr B-deildinni í ár.

Félagið á áhugaverða sögu að baki og hefur bæði unnið efstu deild og bikar á síðustu 30 árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.