08.03.19 - 18:00
Arnar Daði Arnarsson
Ingiberg Ólafur er hættur í HK (Staðfest)

Ingiberg Ólafur er hættur í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingiberg Ólafur er hættur í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingiberg Ólafur Jónsson sem lék 13 leiki með HK í Inkasso-deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim leikjum tvö mörk er hættur í HK. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
HK tryggði sér upp í Pepsi Max deildina eftir að hafa endað í 2. sæti Inkasso-deildarinnar.
HK tryggði sér upp í Pepsi Max deildina eftir að hafa endað í 2. sæti Inkasso-deildarinnar.
„Ég er hættur í HK. Ég ætla að taka mér pásu frá efri deildum í sumar. Ég finn að það er ekki sami áhugi til staðar og áður. Ég ætla kannski að sprikla með vinum mínum í sumar í 4.deildinni," sagði Ingiberg Ólafur í samtali við Fótbolta.net.
Hann lék með HK sumrin 2017 og 2018 en þar áður hafði hann leikið með Fram, Fjarðabyggð og Þrótti.
Ingiberg Ólafur er ekki fyrsti leikmaðurinn sem hættir hjá HK eftir síðasta sumar. Við tilkynntum það í vikunni að þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson og Hákon Þór Sófusson væru hættir hjá félaginu. Þá er ansi líklegt að Árni Arnarson leiki ekki með HK næsta sumar.I