Fotbolti.net
08.03.19 - 11:17
Arnar Daði Arnarsson

Nantes og Kolbeinn rifta samningi sínum (Staðfest)

Kolbeinn Sigþórsson

Kolbeinn Sigþórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Franska félagið Nantes staðfesti það á Twitter síðu sinni nú rétt í þessu að félagið og Kolbeinn Sigþórsson hafi náð samkomulagi um að rifta samningi sínum.

Kolbeinn Sigþórsson er því laus allra mála frá Nantes.
„FC Nantes og Kolbeinn Sigþórsson hafa í dag komist að friðsamlegu samkomulagi um að rifta samningi íslenska framherjans. Félagið óskar honum alls hins besta það sem eftir er af ferli hans," sagði í tilkynningu Nantes í dag.

Kolbeinn hefur glímt við erfið meiðsli á undanförnum árum og þarf að leita sér að nýju félagi til að fá spilatíma. Hann hefur átt erfiða tíma hjá Nantes undanfarna mánuði og hefur hann ekki einu sinni fengið að æfa með aðalliði Nantes.

Kolbeinn er 29 ára gamall. Hann á 48 landsleiki fyrir Ísland og hefur í þeim skorað 23 mörk.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.