Fotbolti.net
08.03.19 - 15:44
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ranieri orðinn þjálfari Roma (Staðfest)

Ranieri er fæddur og uppalinn í Róm.

Ranieri er fæddur og uppalinn í Róm.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur staðfest samning við Claudio Ranieri um að hann stýri liðinu út tímabilið. Eusebio Di Francesco var rekinn eftir að Roma féll úr leik gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Fyrsti leikur Ranieri verður gegn Empoli á mánudagskvöld.

Jim Pallotta, forseti Roma, segir að félagið hafi talið mikilvægt að fá inn þjálfara sem þekki félagið og geti talað tungumálið. Ranieri var þjálfari Roma í átján mánuði frá 2009-2011.
„Ég er hæstánægður með að vera kominn aftur heim. Þegar Roma hringir er ómögulegt að segja nei," segir Ranieri sem náði því frækna afreki að gera Leicester að Englandsmeistara.

Goðsögnin Francesco Totti segir að markmið Roma sé að innsigla sæti í Meistaradeildinni fyrir næsta tímabil.

„Claudio er frá borginni, hann er stuðningsmaður Roma og er einn reynslumesti þjálfari fótboltaheimsins. Við þurfum öruggar hendur til að ná að enda í topp fjórum," segir Totti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.