Fotbolti.net
08.03.21 - 22:27
Victor Pálsson

Belgía: Ari spilaði lítið í tapi

Belgía: Ari spilaði lítið í tapi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Freyr Skúlason byrjaði á varamannabekknum hjá Oostende í kvöld sem mætti Gent í belgísku úrvalsdeildinni.
Ari og hans félagar þurftu að sætta sig við 1-0 tap og mistókst að ná Genk sem situr í þriðja sæti deildarinnar.

Oostende er enn í fjórða sætinu þrátt fyrir tapið en Ari kom við sögu þegar tvær mínútur lifðu leiks.

Miðað við tölfræði leiksins var Oostende ekki verri aðilinn gegn Gent sem situr í tíunda sætinu.

Oostende er í harðri baráttu í Belgíu og er aðeins fimm stigum frá Antwerp sem er í öðru sætinu.

Ljóst er þó að ekkert lið mun ná Club Brugge á toppnum en liðið er þar með 15 stiga forystu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.