Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. mars 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Voru sameinuð fyrir ekki svo löngu síðan
Víkingur tekur á móti HK.
Víkingur tekur á móti HK.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Íslenska undirbúningstímabilið er í fullu fjöri. Í dag verða þrír leikir spilaðir í Lengjubikar kvenna.

Fyrstu tveir leikir dagsins hefjast klukkan 19:00. Víkingur Reykjavík tekur á móti HK en fyrir tveimur árum síðan voru þessi tvö félög sameinuð og spiluðu í efstu deild. Núna eru þau bæði í Lengjudeildinni. Grótta tekur þá á móti ÍA á Seltjarnarnesi.

Klukkan 20:00 tekur síðan Afturelding á móti Haukum í Mosfellsbæ.

Með þessum leikjum klárast önnur umferðin í B-deild Lengjubikars kvenna.

mánudagur 8. mars

Lengjubikar kvenna - B-deild
19:00 Víkingur R.-HK (Víkingsvöllur)
19:00 Grótta-ÍA (Vivaldivöllurinn)
20:00 Afturelding-Haukar (Fagverksvöllurinn Varmá)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner