Fotbolti.net
08.03.22 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mathias Laursen í Fylki (Staðfest)

Mathias Laursen

Mathias Laursen

Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Lengjudeildin
Mathias Laursen hefur skrifað undir samning við Fylki sem mun leika í Lengjudeildinni í sumar.

Þessi 24 ára gamli danski framherji æfði með liðinu fyrr á árinu og spilaði leik þar sem hann skoraði og lagði upp.

Mathias kemur frá Danska félaginu Aarhus Fremad þar sem hann lék 75 leiki og skoraði í þeim 35 mörk.

Hann greindi sjálfur frá því á dögunum að hann væri á leiðinni til Íslands.

„Fylkir bíður Mathias velkominn til félagsins og hlakkar til að sjá hann á vellinum," segir í tilkynningu frá Fylki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.