08.04.18 - 11:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjarni Mark kemur heim og fer í KA (Staðfest)

Bjarni Mark er kominn aftur í KA.

Mynd: Heimasíða KA

Bjarni Mark er kominn aftur í KA.

Mynd: Heimasíða KA
Bjarni Mark Antonsson mun spila fótbolta á Íslandi í sumar. Hann hefur samið við KA á Akureyri og mun taka slaginn með þeim gulklæddu í Pepsi-deildinni.
Bjarni Mark er Siglfirðingur en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með KA árið 2014. Hann var lánaður í Fjarðabyggð sumarið 2015 þar sem hann stóð sig með prýði.
Bjarni Mark er Siglfirðingur en hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með KA árið 2014. Hann var lánaður í Fjarðabyggð sumarið 2015 þar sem hann stóð sig með prýði.
Bjarni Mark er 22 ára að aldri en hann getur bæði spilað sem miðjumaður og miðvörður.
Eftir tímabilið 2015 fór hann til reynslu til sænska C-deildarliðsins Kristianstad þar sem var svo samið við hann. Hann hefur dvalið þar undanfarin tvö ár og spilað við góðan orðstír.
„Við bjóðum Bjarna velkominn aftur í KA og verður gaman að sjá hann í gulu í sumar,\" segir í tilkynningu KA.
Fyrsti leikur KA í Pepsi-deildinni verður þann 28. apríl á útivelli, í Grafarvoginum gegn Fjölni.
Komnir:
Cristian Martinez frá Víkingi Ó.
Hallgrímur Jónasson frá Lyngby
Milan Joksimovic frá FC Gorodeya
Sæþór Olgeirsson frá Völsungi
Bjarni Mark Antonsson frá Kristianstad
Farnir:
Almarr Ormarsson í Fjölni
Aron Dagur Birnuson í Vöslung á láni
Bjarki Þór Viðarsson í Þór
Darko Bulatovic til Serbíu
Davíð Rúnar Bjarnason í Magna
Emil Lyng til Dundee
Srdjan Rajkovic hættur
Vedran Turkalj