Fotbolti.net
08.04.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ramello Mitchell kominn til Southampton (Staðfest)

Ramello Mitchell kominn til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: sportlens

Southampton er búið að krækja í táninginn Ramello Mitchell sem kemur frá Birmingham City. Southampton borgar 300 þúsund pund fyrir framherjann en sú upphæð fer upp í eina milljón þegar hann byrjar að spila fyrir aðalliðið.
Mitchell er 16 ára gamall og hafa njósnarar frá Wolves, Liverpool, Manchester United og Leeds United verið að skoða hann undanfarna mánuði.

Mitchell hefur verið í miklu stuði með U16 og U18 liðum Birmingham og vakti hann athygli á sér þar. Hann skipti yfir til Southampton í síðustu viku og skoraði í sinum fyrsta leik fyrir U16 liðið.

Táningurinn hefur mikla trú á framtíðarmöguleikum sínum hjá Southampton því hann valdi félagið framyfir Wolves, sem lagði fram svipað tilboð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.