Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. apríl 2021 16:00
Magnús Már Einarsson
Bjartsýni hjá PSG með samningamál Neymar og Mbappe
Mynd: Getty Images
Leonardo, yfirmaður íþróttamála hjá PSG, er vongóður um að félagið nái að framlengja samninga við sóknarmennina Neymar og Kylian Mbappe.

Báðir leikmennirnir verða samningslausir sumarið 2022 og hafa verið orðaðir við önnur félög.

„Ég held að við verðum með fréttir til að gera ykkur ánægð fljótlega en við sjáum til," sagði Leonardo léttur í bragði eftir 3-2 sigur PSG á Bayern Munchen í Meistaradeildinni í gær.

„Staðan verður skýrari fljótlega en núna einbeitum við okkkur að keppninni sem við erum í."
Athugasemdir
banner
banner