Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   mið 08. apríl 2026 17:11
Snæbjört Pálsdóttir
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Eimskip
Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur
Systurnar Arna og Hlín Eiríksdætur
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arna Eiríks er klár í slaginn
Arna Eiríks er klár í slaginn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir segir stemninguna góða í íslenska landsliðshópnum fyrir komandi heimaleiki gegn Úkraínu og Englandi. Leikurinn gegn Úkraínu fer fram á Laugardalsvelli næsta þriðjudag. Verkefnið leggst vel í Örnu og hún er spennt. 

„Bara ótrúlega vel, tveir hörkuleikir, ólíkir andstæðingar en þetta er bara mjög spennandi.“ sagði Arna þegar hún ræddi við Fótbolta.net


Arna var að glíma við meiðsli í síðasta landsliðsverkefni og tók því ekki þátt þá en segir sig nú klára í verkefnið.

„Ég var að díla við eitthvað vesen í sköflungsbeinunum, kannski ekki alveg þessi týpísku meiðsli en ég er búin að ná mér að fullu núna, líður vel og er klár í slaginn.“

Hún segir fókusinn skýran innan hópsins fyrir verkefnið.

„Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um að taka einn leik í einu. Bara byrja á fyrri leiknum og einbeita okkur algjörlega að honum, áður en við förum mikið að pæla í seinni andstæðingnum.“

Að hennar sögn bíða tvö ólík verkefni.

„Þetta eru ólíkir andstæðingar og kannski ólíkt verkefni því sem var síðast en þetta leggst vel í okkur og við verðum tilbúnar.“

Arna segir stuðninginn úr stúkunni geta skipt sköpum.

„Ótrúlega mikilvægt, það eiginlega skiptir bara öllu máli. Það getur verið svona þetta extra boost sem fleytir manni áfram, þannig vonandi verður stúkan full.“

Skilaboðin til stuðningsmanna eru einföld:

„Bara mæta á völlinn, það er ekkert mikið flóknara en það.“


Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner