PSG fær Liverpool í heimsókn í kvöld í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Liverpool steinlá 4-0 gegn Man City í enska bikarnum um helgina en Arne Slot gerir tvær breytingar á liðinu. Jeremie Frimpong kemur inn á kantinn fyrir Mohamed Salah sem sest á bekkinn. Þá kemur Alexis Mac Allister inn á miðjuna fyrir Curtis Jones. Þá er Alexander Isak á bekknum en hann hefur verið meiddur undanfarna mánuði.
PSG, sem sló Chelsea úr leik mjög örugglega í síðustu umferð, stillir upp ógnarsterku liði þar sem Desire Doue, Khvicha Kvaratskhelia og Ousmane Dembele leiða línuna.
Þá mætast Barcelona og Atletico Madrid í spænskum slag á Nývangi. Sjáið byrjunarlið kvöldsins hér fyrir neðan.

PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Nuno Mendes; Zaïre-Emery, Vitinha, Joao Neves; Doue, Dembele, Kvaratskhelia
Liverpool: Mamardashvili; Gomez, Konate, Van Dijk, Kerkez; Szoboszlai, Gravenberch, Mac Allister, Wirtz, Frimpong; Ekitike
Atletico Madrid: Musso, Molina, Le Normand, Hancko, Ruggeri, Simeone, Llorente, Koke, Lookman, Griezmann, Alvarez.
Varamenn: Esquivel, De Luis, Mendoza, Sorloth, Alex Baena, Almada, Lenglet, Pubill, Vargas, Gonzalez, Julio Diaz.
Barcelona: Garcia, Kounde, Cubarsi, Gerard Martin, Cancelo, Pedri, Eric Garcia, Olmo, Yamal, Lewandowski, Rashford.
Varamenn: Szczesny, Kochen, Balde, Ronald Araujo, Gavi, Ferran Torres, Fermin Lopez, Casado, Bardghji, Cortes, Xavi Espar, Marques.