Fotbolti.net
08.04.26 - 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Flick: Þeir áttu líka að fá rautt spjald

Flick: Þeir áttu líka að fá rautt spjald
Canon

Mynd: EPA

Barcelona er 2-0 undir í einvíginu gegn Atletico Madrid eftir tap á Nývangi í kvöld.

Pau Cubarsi fékk rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir að brjóta á Giuliano Simeone en Hansi Flick, stjóri Barcelona, segir að Marc Pubill, leikmaður Atletico, hefði einnig átt að fá rautt spjald.
Alvarez skoraði stórkostlegt mark - Barcelona manni færri
TENGT EFNI

Alvarez skoraði stórkostlegt mark - Barcelona manni færri

Juan Musso, markvörður Atletico, virtist vera búinn að taka markspyrnu þegar Pubill setur hendina á boltann til að taka markspyrnuna og ekkert dæmt. Flick vildi sjá Pubill fá sitt annað gula spjald.

„Þeir áttu lika skilið að fá rautt spjald. Markmaðurinn spilar boltanum, það er augljóst, og hann stöðvar boltann með hendinni," sagði Flick.

Marcus Rashford var sammála stjóranum.

„Þetta er augljóslega víti. Þetta hefur gerst áður og það er alltaf víti á þetta," sagði Rashford.

„Ég hef spilað leik þar sem við lentum í þessu og það var dæmd vítaspyrna. Það er erfitt að kvarta undan þessu, markmaðurinn verður að láta hann fá boltann með hendinni eins og hann gerði allan leikinn en í þessu tilfelli notaði hann fótinn og Pubill snerti boltann með hendinni."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.