08.05.19 - 17:30
Arnar Daði Arnarsson
HK/Víkingur fær tvær frá Breiðabliki á láni (Staðfest)

Esther Rós Arnarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Esther Rós Arnarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK/Víkingur hefur fengið sóknarmennina Esther Rós Arnarsdóttur og Guðrún Gyðu Haralz á láni frá Breiðabliki.
Þær eru báðar komnar með leikheimild með HK/Víkingi og geta því leikið með liðinu í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar þegar liðið mætir Selfossi á heimavelli.

Báðar stunda þær nám í Bandaríkjunum og ekkert leikið með Breiðablik í byrjun tímabils.
Esther Rós er fædd árið 1997 og hefur lengst á ferli sínum leikið með Breiðabliki. Einnig hefur hún leikið með Fjölni og ÍBV. Hún hefur skorað 26 mörk í 72 meistaraflokksleikjum.
Þá hefur Esther einnig leikið 31 landsleik með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim 15 mörk.
Guðrún Gyða er fædd árið 1999 en hún hefur leikið með Breiðabliki, KR og Augnabliki í meistaraflokki hér á landi og skorað níu mörk í 37 leikjum.
Þórhallur Víkingsson hefur því fengið til sín tvo sóknarmenn en hann var sammála því að það hafi vantað meiri sóknarþunga í leik HK/Víkings í 1-0 tapi liðsins gegn Stjörnunni í gærkvöldi.
„Það vantar fleiri leikmenn til að skora mörk hjá okkur," sagði Þórhallur að lokum.