Fotbolti.net
08.05.19 - 18:18
Ívan Guðjón Baldursson

Warburton nýr stjóri QPR (Staðfest)

Warburton nýr stjóri QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Championship félagið QPR er búið að ráða Mark Warburton til starfa sem arftaka Steve McClaren.
McClaren var rekinn frá félaginu í byrjun mánaðar vegna slaks gengis en liðið vann aðeins einn leik undir hans stjórn eftir jól. Hann var látinn fara eftir neyðarlegt 1-2 tap gegn Bolton á heimavelli.

Warburton er 56 ára og hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Nottingham Forest fyrir einu og hálfu ári. Hann gerði garðinn frægan sem stjóri Brentford frá 2013-2015 og stýrði svo Rangers í tvö ár þar á eftir.

„Ég tók við starfinu vegna þess að mér lýst vel á langtímaplan QPR og vil ég vera partur af því," sagði Warburton meðal annars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.