08.06.17 - 09:07
Magnús Már Einarsson
Ederson til Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur keypt markvörðinn Ederson Moraes frá Benfica á 35 milljónir punda.
Ederson er dýrasti markvörður sögunnar í pundum talið. Gianluigi Buffon var áður dýrastur en Juventus keypti hann frá Parma á 32,6 milljónir punda árið 2001.
Hinn 23 ára gamli Ederson spilaði 37 leiki þegar Benfica varð portúgalskur meistari á nýliðnu tímabili.

„Ég kann vel við allt í kringum Manchester City,\" sagði Ederson eftir undirskrift. „Það hefur alltaf verið draumur minn að spila á Englandi og nú rætist sá draumur.\"
Ederson mun berjast við Claudio Bravo og Joe Hart um markmannsstöðuna hjá Manchester City.

#WelcomeEderson https://t.co/mxjG4AAYuh
— Manchester City (@ManCity) June 8, 2017