08.06.17 - 08:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jardim framlengir við Mónakó (Staðfest)

Jardim verður áfram stjóri Mónakó.

Mynd: Getty Images

Jardim verður áfram stjóri Mónakó.

Mynd: Getty Images
Leonardo Jardim hefur ákveðið að hunsa áhuga frá öðrum liðum, hann verður áfram þjálfari Mónakó.
Hann er búinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir til 2020.
Hann er búinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir til 2020.
Hinn 42 ára gamli Jardim hefði örugglega getað farið annað eftir að hafa náð frábærum árangri á tímabilinu sem var að klárast. Hann vann frönsku úrvalsdeildina með Mónakó og kom liðinu í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem Juventus var of stór biti.
Það hafa komið upp sögusagnir um að hann sé að fara til Kína, en samkvæmt þessum fréttum er það ekki að fara að gerast.
Þetta verður væntanlega erfitt sumar fyrir Jardim, en stórlið Evrópu beina nú sjónum sínum að leikmönnum Mónakó.

🖊 L\'AS Monaco est heureux d\'annoncer la prolongation du contrat de @leonardojjardim jusqu\'en 2020 ! 🙌 #Jardim2020 🙌 pic.twitter.com/1VmInxcObs
— CHAMPIONS 🏆 (@AS_Monaco) June 7, 2017