08.06.17 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Semdedo í Villareal (Staðfest)

Semedo er búinn að semja við Villareal.

Mynd: Getty Images

Semedo er búinn að semja við Villareal.

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Villareal hefur tilkynnt um kaup á varnarmanninum Ruben Semedo frá Sporting Lisbon.
Hann skrifar undir fimm ára samning við Villareal og kaupverðið er talið vera í kringum 14 milljónir evra.

Sporting mun græða vel á því ef Villareal selur Semedo, en þeir settu klásúlú í samning hans. Þeir munu fá 20% af næsta söluverði.
Þessi sterki miðvörður hefur verið sterklega orðaður við Newcastle og Southampton í ensku úrvalsdeildinni undanfarnar vikur, en hann ákvað frekar að fara í spænsku úrvalsdeildina.
Newcastle leiddi kapphlaupið um hann á tímapunkti, en hann ákvað á endanum að fara í sólina.