Fotbolti.net
08.06.18 - 17:09
Ívan Guðjón Baldursson

Anderson Talisca til Kína (Staðfest)

Anderson Talisca til Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Guangzhou Evergrande er búið að staðfesta komu Anderson Talisca. Hann verður hjá kínverska félaginu í láni út árið.

Talisca er eftirsóttur víða um Evrópu og hefur helst verið orðaður við Manchester United.
Talisca er samningsbundinn Benfica en gerði frábæra hluti á láni hjá Besiktas.

Óljóst er hvort það sé kaupákvæði í lánssamningnum en kínverska félagið greiðir eflaust væna upphæð fyrir að fá sóknarmanninn lánaðan.

Talisca er 24 ára gamall og á sex leiki að baki fyrir U23 og U21 landslið Brasilíu. Hann er talinn vera falur fyrir 40 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.