Fotbolti.net
08.06.18 - 11:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Cristante til Roma (Staðfest)

Cristante til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AS Roma hefur fest kaup á Bryan Cristante sem átti frábært tímabil með Atalanta. Cristante er 23 ára miðjumaður.

Tottenham er meðal félaga sem voru orðuð við Cristante, en Juventus, Inter, Lazio og Napoli reyndu einnig að krækja í hann.
Roma greiðir 30 milljónir evra fyrir Cristante sem kom til félagsins á aðeins 5 milljónir frá Benfica.

Cristante kemur á lánssamning sem Roma greiðir 5 milljónir fyrir. Roma þarf svo að kaupa miðjumanninn á 15 milljónir þegar lánssamningurinn rennur út. Þá greiðir félagið 10 milljónir í bónusgreiðslur.

Cristante er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Roma í sumar eftir komu Ante Coric frá Dinamo Zagreb og Ivan Marcano frá Porto.

OFFICIAL 📑 Bryan Cristante is an #ASRoma player!

The Italian international midfielder becomes our third signing of the summer! ✍️🤝🐺 pic.twitter.com/VvH6OtRhhB

— AS Roma English (@ASRomaEN) June 8, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.