08.06.18 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Delaney fer í írska boltann (Staðfest)
Roma staðfesti félagsskiptin


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Damien Delaney er genginn til liðs við írsku meistarana í Cork City eftir sex ár hjá Crystal Palace.
Ítalska knattspyrnufélagið AS Roma greindi frá þessu á Twitter, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem félagið tístir um Delaney og ekki hefur fengist staðfest hvers vegna.
Ítalska knattspyrnufélagið AS Roma greindi frá þessu á Twitter, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem félagið tístir um Delaney og ekki hefur fengist staðfest hvers vegna.
Delaney verður 37 ára í sumar og ætlar að ljúka ferlinum þar sem hann byrjaði, með Cork.
Delaney er írskur og á níu A-landsleiki að baki, en hann hefur leikið 178 úrvalsdeildarleiki fyrir Leicester og Palace.
Delaney er írskur og á níu A-landsleiki að baki, en hann hefur leikið 178 úrvalsdeildarleiki fyrir Leicester og Palace.
OFFICIAL 📑 Damien Delaney is a Cork City player! 🏰🚢🏰
— AS Roma English (@ASRomaEN) June 8, 2018
The central defender has signed a contract with the League of Ireland champions until the end of the 2019 season! ✍️ #GoodLuckDamien pic.twitter.com/3CWshsfRDB
