08.06.18 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ekambi til Villarreal fyrir 20 milljónir (Staðfest)

Ekambi gegn Emre Can í Álfukeppninni í fyrra.

Mynd: Getty Images

Kamerúnski sóknarmaðurinn Karl Toko Ekambi er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Villarreal.
Ekambi er 25 ára gamall og skoraði 17 mörk í 37 leikjum með Angers í frönsku efstu deildinni.

Villarreal er talið greiða um 20 milljónir evra fyrir sóknarmanninn sem er metfé fyrir Angers.
Villarreal vantar sóknarmann eftir söluna á Cedric Bakambu, en ólíklegt er að Carlos Bacca komi aftur til félagsins þar sem hann var á láni.
Ekambi var valinn besti afríski leikmaður frönsku deildarinnar þar sem hann lagði upp sex mörk og var í lykilhlutverki er Angers bjargaði sér frá falli.