08.06.18 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fekir búinn að skrifa undir samning


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
<i>Le Parisien</i>, <i>Guardian</i> og <i>Mirror</i> greina frá því að Nabil Fekir sé búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir samning við Liverpool.
Fekir fær um 140 þúsund pund í vikulaun og borgar Liverpool í kringum 50 milljónir fyrir sóknarmanninn.
Fekir fær um 140 þúsund pund í vikulaun og borgar Liverpool í kringum 50 milljónir fyrir sóknarmanninn.
Fekir átti frábært tímabil með Lyon þar sem hann var sérstaklega öflugur fyrir áramót. Hann var meðal bestu leikmanna deildarinnar, enda valinn maður leiksins tólf sinnum á tímabilinu af WhoScored.
Fekir er 24 ára gamall og fer með franska landsliðinu á HM í sumar. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool.
Fekir er 24 ára gamall og fer með franska landsliðinu á HM í sumar. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool.
