08.06.18 - 13:52
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Kane framlengir við Tottenham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tottenham hefur staðfest að Harry Kane er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Samningurinn gildir til 2024 og greina enskir fjölmiðlar frá því að Kane gæti fengið svo mikið sem 15 milljónir punda á ári með bónusgreiðslum.
Samningurinn gildir til 2024 og greina enskir fjölmiðlar frá því að Kane gæti fengið svo mikið sem 15 milljónir punda á ári með bónusgreiðslum.
Kane varð á nýliðnu tímabili þriðji leikmaðurinn til að skora 25 mörk á tímabili þrjú tímabil í röð í ensku deildinni, eftir Alan Shearer og Thierry Henry.
Búist er við að Dele Alli kroti einnig undir nýjan samning á næstu dögum en Mauricio Pochettino skrifaði undir í maí.
Búist er við að Dele Alli kroti einnig undir nýjan samning á næstu dögum en Mauricio Pochettino skrifaði undir í maí.
📺 Testing, testing... 👀#SpursNewStadium pic.twitter.com/oZOrSyqRWy
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 8, 2018
