08.06.18 - 10:04
Ívan Guðjón Baldursson
Jonny Evans til Leicester (Staðfest)

Evans og félagar féllu úr úrvalsdeildinni.

Mynd: Getty Images

Leicester hefur fest kaup á miðverðinum Jonny Evans frá West Bromwich Albion.
Evans er þrítugur og hefur leikið fyrir West Brom undanfarin þrjú ár, en félagið féll á nýliðnu tímabili.

Evans var orðaður við flest stórlið úrvalsdeildarinnar síðasta sumar og aftur í janúar, þar sem Manchester City, United og Arsenal höfðu öll áhuga.
Leicester borgar 3.5 milljónir punda fyrir Evans vegna riftunarákvæðis sem virkjaðist þegar West Brom féll. Hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Englandsmeistarana fyrrverandi.
Evans á 235 úrvalsdeildarleiki að baki og vann þrjá Englandsmeistaratitla á tíma sínum hjá Rauðu djöflunum. Hann á 70 A-landsleiki að baki fyrir Norður-Írland.
Þetta er annar leikmaðurinn sem kemur til Leicester í sumar eftir að hægri bakvörðurinn Ricardo Pereira skrifaði undir samning í maí.