Fotbolti.net
08.06.18 - 17:13
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Mattia Perin til Juventus (Staðfest)

Mattia Perin til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski markvörðurinn Mattia Perin er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Ítalíumeistara Juventus.

Perin hefur alla tíð verið samningsbundinn Genoa og er talinn helsti keppinautur Gianluigi Donnarumma til að taka við markmannsstöðu ítalska landsliðsins af Gianluigi Buffon.
Hjá Juventus mun Perin berjast við Pólverjann Wojciech Szczesny um byrjunarliðssæti, en á nýliðnu tímabilið skiptu Szczesny og Buffon leikjum nokkuð jafnt á milli sín.

Juve greiðir um 15 milljónir evra fyrir Perin sem 25 ára gamall og á 2 A-landsleiki að baki, auk 27 leikja fyrir yngri landsliðin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.