Fotbolti.net
08.06.18 - 12:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vetrarfrí í enska boltanum 2020 (Staðfest)

Vetrarfrí í enska boltanum 2020 (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Martin Glenn, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins, staðfestir að það verður vetrarfrí í enska boltanum frá og með þarnæsta tímabili, 2019-20.

Glenn segir vetrarfríið vera gert til að gefa leikmönnum líkamlega og andlega pásu, en stærstu deildir Evrópu fara allar í vetrarfrí.
Margir telja slæmt gengi enska landsliðsins á stórmótum koma til vegna þess að leikmenn fá ekkert vetrarfrí. Ítalía, Spánn, Þýskaland og Frakkland hafa gert talsvert betur á stórmótum undanfarna áratugi.

Hvert lið fær tveggja vikna frí, þar sem einni umferð verður skipt á milli tveggja helga og tíu lið spila hvora helgi.

Fyrsta fríið verður í lok janúar 2020 og ættu ensku landsliðsmennirnir því að vera í betra standi fyrir Evrópumótið heldur en oft áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.