Fotbolti.net
08.06.19 - 12:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nigel Adkins hættir með Hull City (Staðfest)

Nigel Adkins.

Nigel Adkins.

Canon

Mynd: Getty Images

Nigel Adkins hefur ákveðið að hætta sem stjóri Hull City sem leikur í ensku Championship-deildinni.
Samningur hans rennur út í sumar og mun hann ekki framlengja samninginn.

„Þetta er erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferli mínum," skrifaði Adkins á Twitter.

Adkins, sem er fyrrum stjóri Southampton meðal annars, tók við Hull í desember 2017. Á sínu fyrsta tímabili stýrði hann Hull í 18. sæti og núna á þessu tímabili endaði Hull í 13. sæti.

Honum bauðst að halda áfram með Hull en ákvað að taka því ekki. Eigandi Hull, Assem Allam, er að reyna að selja félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.