Mörg félög hafa áhuga á japanska sóknarmanninum Takumi Minamino og Liverpool er tilbúið að selja hann fyrir um 17 milljónir punda.
Leeds, Wolves, Fulham, Southampton og Mónakó eru meðal félaga sem sögð eru hafa áhuga á þessum 27 ára leikmanni.
Leeds, Wolves, Fulham, Southampton og Mónakó eru meðal félaga sem sögð eru hafa áhuga á þessum 27 ára leikmanni.
Minamino kom til Liverpool frá Red Bull Salzburg 2019 en var lánaður til Southampton í febrúar 2021 og lék tíu leiki áður en hann mætti aftur á Anfield fyrir 2021-22 tímabilið.
Minamino hjálpaði Liverpool að vinna FA-bikarinn og deildabikarinn á liðnu tímabili en hann var markahæsti leikmaður liðsins í bikarkeppnum á síðasta tímabili.
Hann lék hinsvegar aðeins ellefu leiki í úrvalsdeildinni þar sem Liverpool endaði einu stigi á eftir meisturum Manchester City.
Athugasemdir