Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 09:40
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes
Powerade
Mateus Fernandes.
Mateus Fernandes.
Mynd: EPA
Michael Olise.
Michael Olise.
Mynd: EPA
Hér er slúðurpakki dagsins á þessum fallega mánudegi. HM hefst á fimmtudaginn og stutt í að sumarglugginn opnar. Hér er slúðurpakki dagsins en BBC tók saman.

Real Madrid hyggst blanda sér í baráttuna um portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes (21) eftir fall West Ham úr ensku úrvalsdeildinni. (Sun)

Brighton hefur hafnað öðru tilboði Tottenham í hollenska miðvörðinn Jan Paul van Hecke (25). (Talksport)

Harry Maguire (33) gæti yfirgefið Manchester United í sumar þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning fyrir nokkrum mánuðum. (Football Insider)

Inter á Ítalíu hefur gert tilboð í enska miðjumanninn Curtis Jones (25) en það er talsvert langt frá verðmiða Liverpool. (Gazzetta dello Sport)

Liverpool gæti boðið hollenska sóknarmanninn Cody Gakpo (27) sem skiptimynt í tilboði í hollenska kantmanninn Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig. (Teamtalk)

Real Madrid mun væntanlega gera 130 milljóna punda tilboð í franska landsliðsmanninn Michael Olise (24) hjá Bayern München eftir úrslit forsetakosninganna. (Mirror)

Bayern München segir að Olise sé ekki til sölu. (Bild)

Bernardo Silva (31) segir að það sé möguleiki á að fara til Barcelona en portúgalski miðjumaðurinn, sem hefur yfirgefið Manchester City, hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð sína. (Marca)

Ítalski landsiðsmarkvörðurinn Guglielmo Vicario (29) hjá Tottenham er efstur á blaði í markvarðarleit Juventus. (Gazzetta dello Sport)

Coventry City hefur boðið 20 milljónir punda, sem er félagsmet, í enska markvörðinn Carl Rushworth (24) sem hjálpaði liðinu að vinna Championship-deildina þegar hann var á láni frá Brighton á liðnu tímabili. (Talksport)
Slapp
banner
banner