Piero Ausilio, yfirmaður íþróttamála hjá Ítalíumeisturum Inter, hefur staðfest áhuga á félagsins á enska miðjumanninum Curtis Jones.
Inter er sagt eiga í viðræðum við Liverpool um kaup á Curtis Jones, en félögin hafa ekki enn fundið lendingu varðandi kaupverðið.
Liverpool er talið vilja um 25 til 30 milljónir punda fyrir leikmanninn, auk prósentu af næstu sölu. Inter er ekki reiðubúið að ganga að þeim verðmiða eins og staðan er núna og því er óvíst hvað verður.
Piero Ausilio, yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter, segir það ekkert leyndarmál að félagið hafi áhuga á Jones.
„Það er ekkert leyndarmál að við erum að fylgjast með Curtis Jones. Hann er leikmaður sem okkur líst vel á og við ætlum ekkert að fara í felur með það. Sjáum til hvernig málin þróast,“ sagði Ausilio.
Jones er uppalinn hjá Liverpool og spilað yfir 200 leiki síðan hann þreytti frumraun sína í byrjun árs 2019.




