Fotbolti.net
08.07.17 - 18:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Berchiche til liðs við PSG (Staðfest)

Berchiche í baráttunni gegn Lionel Messi.

Berchiche í baráttunni gegn Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Bakvörðurinn Yuri Berchiche er genginn í raðir franska stórliðsins Paris Saint-Germain frá Real Sociedad.

Hann kostar PSG 13 milljónir evra, en hann er búinn að krota undir fimm ára samning í frönsku höfuðborginni.
Berchiche hefur verið fastamaður í liði Real Sociedad síðustu þrjú tímabil og byrjaði hann 35 af 38 leikjum liðsins á síðasta tímabili.

„Ég er gríðarlega ánægður og get ekki beðið eftir því að fara til Paris Saint-Germain,\" sagði leikmaðurinn við heimasíðu PSG.

Berchiche hóf feril sinn hjá Athletic Bilbao áður en hann fór í misheppnaða ferð til Tottenham þar sem hann spilaði ekki einn einasta leik. Hann fór aftur til Spánar árið 2010 og gekk svo til liðs við Sociedad árið 2012. Nú er hann farinn til Frakklands.

Paris Saint-Germain are thrilled to announce that Yuri Berchiche has signed with the club through 2022!! #Berchice2022 pic.twitter.com/6BMFC7AoPS

— PSG English (@PSG_English) July 7, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.